Home
Top Artistes
Top Paroles
Ajouter Paroles
Contact
menu
search
Contactez-nous
Artiste:
Skálmöld
Titre:
Valhöll
Assurez-vous que les corrections sont tout à fait exactes
S'il vous plaît, les mettez en évidence en quelque sorte!
Vous pouvez, par exemple, écrire
INCORRECT: avant la mauvaise ligne
CORRECT: avant la correspondant ligne correcte
Autrement, nous ne pouvons les corriger pas! Merci pour votre aide.
Hetja er fallin, höndin sár, höfuðið klofið að strjúpa. Gróa þar síðan Baldursbrár, berjalyng kroppar rjúpa. Valkyrjur sækja vígamenn, völlurinn ataður blóði. Einherja mun þig Óðinn senn útnefna, vinurinn góði. Hafinn á loft og traust er tak, tekinn án nokkurra refja. Vergmálar víða vopnaskak, við megum alls ekki tefja. Sannað sig núna hefur hann, hetja og örlagavaldur. Kveðjum við þennan mæta mann, maðurinn sá heitir Baldur. Valkyrjur nú valinn kanna, velja menn til stórræðanna. Okkar þannig Bifröst bíður, Baldur hafri Þórs upp ríður. Yfir sjáum heiðna hrafna, Huginn, Muninn visku safna. Heimdallur mun hliðin opna, höldum inn og beint til vopna. Einherjar um völlinn vaða, Valhöll, staður allra staða. Miðgarður kveður, magnlaus þá mókaður um ég svamla. Núna ég horfi niður á nautin við bæinn minn gamla. Bærist þar líf við Bæjartjörn, balinn er umvafinn lyngi. Leika sér þarna lítil börn, lífið, það gengur í hringi. Að okkur nú goðin gæta, glaðir skulum kverkar væta. Mært hvern annan mætir getum, mjöðinn drekkum kjötið etum. Báðir tveir, jarl Gunnar, Grímur, glösin tæma, kveða rímur. Búnir undir ragnarökin, rekum sverðin út um bökin. Sárin gróa, sorgir bakka, sálin heil, ég Óðni þakka.