Home
Top Artistes
Top Paroles
Ajouter Paroles
Contact
menu
search
Contactez-nous
Artiste:
Solstafir
Titre:
Nón
Assurez-vous que les corrections sont tout à fait exactes
S'il vous plaît, les mettez en évidence en quelque sorte!
Vous pouvez, par exemple, écrire
INCORRECT: avant la mauvaise ligne
CORRECT: avant la correspondant ligne correcte
Autrement, nous ne pouvons les corriger pas! Merci pour votre aide.
Sólbrot yfir nátthaga, læðist sifji nætur, stelur minni sálarró. Þögnin þung sem blóð, brestur tónn eitt sinn fagur. Kyrrð í vetrarríki. Myrkrið mýkir glætan gul, gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný, nóttin þung sem blý. Fönnin kæfir sumarilm. Vetur tekur yfir. Vonin kom með vorinu en lifði ekki lengi hér á Góumánuðum, dó í ánauðum, stoltið drap þá veiku von. Kyrrð í vetrarríki. Rökkvar yfir lífi okkar, úr fjarlægðinni fögur er ástin vorboðin, hjartans vorboðinn, nú grafin er í fönn. Vetur tekur yfir. Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi, dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum. Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig? Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn? Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum, né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið. Drápu niður fæti illar draumfarir. Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð.